Tæling á netinu-er verið að tæla barnið þitt?

 

 

Verkefnið tæling á netinu er forvarnarverkefni styrkt af Forvarnarsjóði Velferðarráðs Reykjavíkurborgar.

 

Hér er hægt að finna upplýsingar um hvaða aðferðir tælendur á netinu nota og hvað veldur því að börnin okkar eru eins berskjölduð og raun ber vitni gagnvart aðferðum þeirra.

 

Einnig eru hér upplýsingar um hvað er til ráða og hvert er hægt að snúa sér til að fá frekari upplýsingar um fleira er snýr að börnunum okkar og netnotkun þeirra. 

 

Aðstandendur verkefnisins eru Guðlaug M.Júlíusdóttir, félagsráðgjafi og Erla S.Hallgrímsdóttir, félagsráðgjafi.

Saman hafa þær áratuga reynslu í vinnu með börnum, unglingum og fjölskyldum þeirra, á vettvangi opinberra stofnana, félagsmiðstöðvum og félagasamtökum, innanlands og erlendis.



Modify Website

© 2000 - 2011 powered by
www.doteasy.com